Ég var búinn að ákveða það í síðustu viku að fara um helgina og skoða gögnguskíði, mig hefur langað í gönguskíði í nokkurn tíma og var að spá í að láta slag standa og kaupa mér skíði, skó og bindingar, en það hafa verið mjög góð tilboð í gangi. Verkefni 2 þessa sömu helgi var að fara í IKEA og kaupa kerti. Alla þessa viku hef ég vaknaða frekar styrður og með bakverki, en þeir hafa farið um leið og ég fer á fætur, þetta er að ágerast og síðustu daga hef ég vaknað upp við verki á nóttuni, það var það sama sagan á laugardaginn, ég vaknaði fyrir kl 7 með verki í skrokknum en vildi liggja aðeins lengur í rúminu og náið að dorma til kl 9. Kl 10 hringir yfirmaður minn og segir að það hafi komið upp vandamál á olíuborpalli og ég þurfi að vera mættur í þyrluna eftir tæpa 4 tíma, ég hendi mér út í bíl og keyri í vinnuna (35 km) pakka saman dótinu sem ég þurfti og plokka til pappírs flóðið sem fylgir svona verki. Ég kem dótinu fyrir í bílnum og keyri út í þyrlu porti, en ákvað fyrst að koma við heima og skipta um föt, þegar að ég er að græja mig heima og innan við 1 tími í brottför hringir yfirmaðurinn aftur og segir að hætt hafi verið við að gera þetta núna. Ég var óskup ánægður og hringdi í Pétur og bauð honum í pulsu í IKEA, í leiðini skoðaði ég skíði og sá ekkert sem mér leist á, ætla ekki að fara að kaupa mér eitthvað dýrt, en tilboðin vöru ekki legur í boði. Ég ætla að bíða þangað til eftir páska og skoða tilboðin þá.
Ég bauð mér svo í mat til Villa og Örnu eftir að hafa afþakkað matarboð fyrr um morguninn út af fyrirhugaðri vinnuferð.
Olla kemur svo á morgun, ætli þetta sé ekki nó í bili hjá henni, 1 mánuður frá kallinum, kanski á þetta að vera árlegt, í fyrra skrapp hún 1 mánuð til afríku og nú 1 mánuð til íslands, hvert fer hún á næsta ári ?
Hér er ennþá talsverður snjór en hitastigið er á uppleið og spáð rigningu á morgun, það á sjálfsagt eftir að flæða inn í marga kjallara á næstu dögum og einhver þök að brotna, en um helgina hef ég sé marga uppi á þaki hjá sér að moka snjó.
Mottu áskorunin gengur vel, vinir og ættingjar hafa styrkt gott málefni, en ég get ekki sagt að Djúpavogs búar hafi verið eins duglegir. Ég skora á Ykkur Djúpavogsbúar og styrkja þetta málefni og heita á mig (af sjálfsögðu) eða Gísla bróðir sem er einn myndarlegasti mottusafnari landsins.