Þið verðið bara að afsaka lítil skrif, sennilega er þetta bara aldurinn, á kvöldin er ég svo þreyttur að ég sofna yfirleitt í sófanum fyrir framna sjónvarpið. Með hækkandi sól ætti þetta að fara að lagast.
Nó að gera í vinnuni og ekki útlit fyrir neinum ferðalögum á næstunni.
Nú er byrjað að snjóa aftur, kingir niður risastórum snjó flyksum. Það er búið að vera snjór hérna frá því fyrir jól, frost og fallegt veður, eiginlega svo gott veður að mengunnar ský hefur safnast upp og um tíma var takmörkuð umferð um stóran part af Bergen, svo kom smá vindur og mengunin fauk burtu.
Farinn að moppa og sækja meiri við niður í kjallara, sem betur fer keypti ég slatta af við í vetur og höfum við brent einn poka (50-60 lítra) af við á hverjum degi í frostinu, talsvert minna núna, 1/3 úr poka.